Umferðaröryggi á þjóðvegum

Þriðjudaginn 17. febrúar 2004, kl. 15:27:36 (4307)

2004-02-17 15:27:36# 130. lþ. 65.7 fundur 205. mál: #A umferðaröryggi á þjóðvegum# þál., SigurjÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur, 130. lþ.

[15:27]

Sigurjón Þórðarson (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst vel koma til greina að spyrja hæstv. ráðherra út í vinnu þeirra varðandi þetta mikilvæga mál. Mér fyndist í raun eðlilegra að þeir hefðu sjálfir frumkvæði að því að greina þjóðinni frá því hvað þeir hafa aðhafst í málinu vegna þess að þetta er almenningi mikilvægt.