Umferðaröryggi á þjóðvegum

Þriðjudaginn 17. febrúar 2004, kl. 15:30:46 (4310)

2004-02-17 15:30:46# 130. lþ. 65.7 fundur 205. mál: #A umferðaröryggi á þjóðvegum# þál., SigurjÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur, 130. lþ.

[15:30]

Sigurjón Þórðarson (andsvar):

Frú forseti. Ég tel að öll umræða hér sé af hinu góða þó svo að ég sé efins um að rétt sé að skipa nefnd áður en við fáum svör um það hver árangur fyrri nefnda hafi verið. Ég tel að hæstv. dómsmrh. ætti að sýna þessum málaflokki mikla alúð, vegna þess að þetta skiptir þjóðina miklu máli, og verja til hans nægjanlegum fjármunum og sérstaklega til lögregluliða úti á landi. Ég tek undir það með hv. þm. Margréti Frímannsdóttur.