Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Með þessari þáltill. sem hér hefur verið tekin á dagskrá er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn og fella inn í hann tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins. Málið fjallar um miðlun vátrygginga. Gerð er grein fyrir efni þessarar ákvörðunar í þáltill. og hún er prentuð sem fylgiskjal með henni. Þessi ákvörðun kallar á lagabreytingar hér á landi og var tekin af sameiginlegu EES-nefndinni með stjórnskipulegum fyrirvara af Íslands hálfu.
Hvað varðar efnisatriði málsins nægir að nefna að með þessari ákvörðun er verið að fella inn í EES-samninginn tilskipun Evrópusambandsins um vátryggingamiðlara. Markmið þessarar tilskipunar er að afnema hindranir í vegi þess að vátryggingamiðlarar geti stundað starfsemi sína óhindrað á innri markaðnum. Það er verið að samræma þessa starfsemi þannig að allir vátryggingamiðlarar geti starfað frjálst á öllum markaðnum.
Enn fremur mælir tilskipunin fyrir um aukna neytendavernd, m.a. með því að setja strangari kröfur um starfsemi téðra vátryggingamiðlara og mæla fyrir aukinni upplýsingagjöf til neytenda. Að lokum má geta þess að viðskrn. hefur hafið undirbúning að gerð frv. til að laga megi íslenska löggjöf að ákvæðum þessarar tilskipunar.
Ég vil leggja til, herra forseti, að máli þessu verði vísað að lokinni umræðu til hv. utanrmn.