2004-02-19 14:30:18# 130. lþ. 68.4 fundur 482. mál: #A samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu# þál., utanrrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 130. lþ.

[14:30]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Þetta mál tengist því máli sem nokkuð var rætt hér um áðan í ágætri umræðu um norsk-íslenska síldarstofninn. Með þessari þáltill. er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2003 sem gengið var frá með orðsendingaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 31. mars og 15. apríl sl.

Samkvæmt samningi þessum skyldu aðilar semja fyrir 20. júní sl. um veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á loðnuvertíðinni sem stendur frá þeim degi til apríl 2004. Eins og í samningi landanna frá 2002 er við það miðað að veiðiheimildir færeysku nótaskipanna á þessu tímabili séu um 30.000 lestir enda breytist ekki í verulegum atriðum forsendur varðandi leyfðan heildarafla og önnur atriði er máli skipta.

Í samningnum er eins og í samningi aðila frá 2002 kveðið á um að færeyskum skipum sé heimilt á loðnuvertíðinni 2003--2004 að veiða allt að 10.000 lestir af loðnu innan lögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.

Samningurinn gerði enn fremur ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til kolmunnaveiða innan lögsögu hins á árinu 2003.

Þá er í samningnum staðfest heimild íslenskra skipa til veiða á allt að 1.300 lestum af makríl og 2.000 lestum af síld, þ.e. annarri síld en úr norsk-íslenska stofninum, innan færeyskrar lögsögu á árinu 2003.

Loks var að finna í samningnum það nýmæli að hvor aðili skyldi veita tveimur skipum sem skráð voru í landi hins aðilans leyfi til tilraunaveiða á túnfiski innan lögsögu sinnar á árinu 2003.

Ég vil leggja til, herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til hv. utanrmn.