Halldór Blöndal (andsvar):
Frú forseti. Í raun og veru krefst athugasemd hv. 10. þm. Norðvest., Sigurjóns Þórðarsonar, ekki svars, nema ég vil leggja áherslu á að bráðabirgðaákvæði III í þessu frv. lýtur að því að opna glufu til þess að hægt verði að fá úr því skorið hvort samkomulag takist milli landeigenda og Landsvirkjunar um það að gera þær endurbætur á Laxárvirkjun að hægt sé að reka hana. Það er einmitt um þetta sem deilan hefur snúist hér í þingsalnum.