Helgi Hjörvar:
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að hreyfa þessu mikilvæga máli og sömuleiðis þakka ég hæstv. félmrh. fyrir ágætan lestur hans á svörum embættismanna félmrn. í sambandi við það.
Ég held þó að það hafi í sjálfu sér verið skipaðar nægilega margar þverfaglegar nefndir um málefni geðfatlaðra, nægilega margir starfshópar hinna ólíku ráðuneyta til að fjalla um hina faglegu þætti málsins og það sé, eins og hér hefur fram komið, löngu tímabært að grípa til aðgerða sérstaklega varðandi hópinn sem er á Landspítalanum. Ég hvet hæstv. félmrh. og ekki síst hæstv. heilbrrh. til að horfa til þess fordæmis sem fyrirrennarar þeirra settu þegar heilbrrh. samdi við félmrh. um að leggja honum til fjármagn til að útskrifa af Kópavogshælinu þá þroskaheftu einstaklinga sem þar voru enn. Ég held að það hafi verið ákaflega farsælt átak. Þar voru einfaldlega nokkrir tugir þroskaheftra sem þurfti að koma út í samfélagið og það er nákvæmlega eins praktískt og blátt áfram verkefni sem þessir herramenn þurfa að semja um að ráðast í.