Eignarhald á fjölmiðlum

Mánudaginn 01. mars 2004, kl. 15:21:38 (4677)

2004-03-01 15:21:38# 130. lþ. 73.1 fundur 364#B eignarhald á fjölmiðlum# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 130. lþ.

[15:21]

Menntamálaráðherra (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):

Frú forseti. Það er hárrétt hjá hv. þm. Björgvini G. Sigurðssyni að upp er runninn 1. mars. En það kom líka fram í máli hv. þm. að hann hefur nákvæmlega sömu upplýsingar og ég um störf nefndarinnar, þ.e. að það er greinilegt að vinna nefndarinnar kemur til með að dragast eitthvað fram undir lok þessa mánaðar.

Ég hef það sem meginreglu að skipta mér ekki af nefndum sem eru að störfum og segja þeim fyrir verkum. Þeir ágætu herramenn sem eru í þessari nefnd vita hvert hlutverk þeirra er. Ég mun ekki skipta mér af störfum nefndarinnar. Ég kem til með að bíða niðurstaðna nefndarinnar eins og aðrir þingmenn.