Eignarhald á fjölmiðlum

Mánudaginn 01. mars 2004, kl. 15:23:39 (4679)

2004-03-01 15:23:39# 130. lþ. 73.1 fundur 364#B eignarhald á fjölmiðlum# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 130. lþ.

[15:23]

Menntamálaráðherra (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):

Frú forseti. Ég tel hárrétt hjá hv. þm. að við verðum að vanda til verka. Þess vegna tel ég að nefndin geti fengið þann tíma sem hún hefur sagt að hún þurfi, þ.e. til loka þessa mánaðar. Við þurfum að huga vel að ýmsum atriðum í kringum okkur, hvernig umhverfið er hér og hvernig það er annars staðar. Þess vegna tel ég rétt að nefndin fái þann tíma sem hún hefur beðið um.

Síðan kemur málið til meðferðar Alþingis ef svo ber undir.