Fjárhagserfiðleikar dómstólanna og efling sérsveitar lögreglunnar

Þriðjudaginn 02. mars 2004, kl. 13:41:36 (4730)

2004-03-02 13:41:36# 130. lþ. 74.91 fundur 371#B fjárhagserfiðleikar dómstólanna og efling sérsveitar lögreglunnar# (aths. um störf þingsins), Forseti SP
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 130. lþ.

[13:41]

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Forseti vill að gefnu tilefni taka fram að hæstv. dómsmrh. hefur talað tvisvar í umræðunni og þingsköp leyfa ekki að hann komi oftar í ræðustól. Hins vegar hefur verið bent á að nk. fimmtudag fer fram utandagskrárumræða um málefni lögreglunnar í landinu.