Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Ræða hæstv. heilbrrh. kom mér sannast sagna mjög á óvart. Ég hélt að hér mundi birtast hinn sanngjarni ábyrgi maður sem vildi leysa þessa deilu. Það gerðist ekki.
Mér fannst anda köldu frá hæstv. ráðherra í garð starfsfólks heimahjúkrunar og skjólstæðinga hennar. Hann talar um kjarabætur og kröfur um kjarabætur. Það er enginn að tala um kjarabætur. Það er verið að koma í veg fyrir kjaraskerðingu og þegar talað er um að þetta sé gert til að byggja upp heimahjúkrun spyr ég: Er það gert með því að brjóta starfsfólkið niður?
Árið 1990 var gert samkomulag um yfirfærslu heimahjúkrunar frá sveitarfélögum til ríkis. Þá munaði nokkuð um hve lakar ríkið bjó að starfsfólki varðandi greiðslur fyrir akstur en tíðkaðist hjá sveitarfélögunum. Þá var gert samkomulag þar sem segir m.a., með leyfi forseta:
,,Bifreiðakostnaður verður greiddur samkvæmt reglugerð en það sem á kann að vanta að sú greiðsla sé sambærileg við núverandi greiðslur skal bætt með greiðslu sérstaks launaliðar og skal þá tekið tillit til þess að starfsmaðurinn verði að fullu eins settur og hann áður var.``
Nú gerist það að þessum samningi er einhliða sagt upp. Það er brot á samningi, það er gróft brot á samningi. Það sem meira er að við þetta er fyrirsjáanlegt að kjör margra starfsmanna muni skerðast stórlega. Þeir líta á það sem uppsögn, þessa grófu kjaraskerðingu. Þegar svo var komið var sest að samningaborði og reynt að ná samkomulagi. Ég fullyrði að samkomulag væri í sjónmáli ef til þess væri vilji. Sá vilji er hvorki fyrir hendi hjá atvinnurekendahliðinni né hjá hæstv. heilbrrh. og fólkið hefur þurft að sæta ásökunum um vinnusvik og að standa sig ekki í starfi, grófum ásökunum, og meðan menn sitja við samningaborð er reynt að hafa störfin af fólkinu fyrir fullt og allt með því að auglýsa þau laus til umsóknar og fá síðan íhlaupafólk á miklu hærri launum, málaliðamarkaði, til að ganga í þessi störf.
Hvar er vilji hæstv. ráðherra? Hvers vegna kemur hann ekki á ábyrgan hátt fram í þessu máli og leysir úr því neyðarástandi sem skapast hefur í heimahjúkrun á höfuðborgarsvæðinu? [Klapp frá þingpöllum.]