Dagný Jónsdóttir:
Virðulegi forseti. Leitt er að horfa upp á þá stöðu sem nú er komin upp varðandi heimahjúkrunina. Stefna stjórnvalda og heilbrigðisáætlunin sem samþykkt var á hv. Alþingi gengur út á að efla til muna heimaþjónustu og þá sérstaklega við aldraða með það að markmiði að þeir geti dvalist sem lengst á eigin vegum utan stofnana. Var því ákveðið að veita 50 millj. kr. fjárveitingu á ári næstu þrjú árin til að uppfylla þetta markmið. Einnig gerðu heilbrrn. og Reykjavíkurborg með sér samkomulag um samtvinnun félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar í Reykjavík. Allt ber þetta vott um framtíðarsýn stjórnvalda og metnaðarfulla áætlun, áætlun sem nú gæti verið í uppnámi vegna uppsagna 37 starfsmanna miðstöðvar heimahjúkrunar.
Nauðsynlegt er að taka fram að áfram starfa 46 einstaklingar, jafnvel einstaklingar sem vinna sömu vinnuna en njóta ekki sömu kjara. Heilsugæslan hefur lagt fram tilboð um fyrirkomulag aksturs og hvernig hagræðing í akstursmálum verði nýtt til launahækkunar. Heilsugæslan telur að með tilboðum þeirra sé hún að ráðstafa allri hagræðingu þessa árs og geti ekki gengið lengra. Krafa okkar hlýtur að vera að deiluaðilar setjist við samningaborðið og semji, enda er ábyrgð beggja aðila gríðarleg gagnvart skjólstæðingum heimahjúkrunar, skjólstæðingum sem margir hverjir eiga allt sitt undir þeirri góðu heimahjúkrun sem innt er af hendi.
Ég vil að lokum segja að mér finnst afar ómaklegt að hv. 9. þm. Reykv. s., Ögmundur Jónasson, skuli segja að það andi köldu frá hæstv. heilbrrh. til skjólstæðinga heimahjúkrunar. Það hefur hann ekki gert sig sekan um.