Jóhann Ársælsson:
Hæstv. forseti. Það sem fékk mig til að biðja um orðið var að hæstv. ráðherra svaraði ekki fyrirspurninni, þ.e. um hvort hún ætlaði að beita sér fyrir því að þessi gjöld yrðu afnumin. Það er mikilvægt, og ég legg áherslu á að hæstv. ráðherra svari því skýrt, hvaða hug hún hefur í þessu máli. Það er nauðsynlegt að menn viti það.
Það er auðvitað margt sem menn geta velt fyrir sér varðandi það með hvaða hætti eigi að fjármagna þetta. Ég get tekið undir það sem hér hefur verið sagt um þá hluti en vil láta það fylgja að ég tel að Ríkisútvarpið eigi að hafa tekjur af auglýsingum áfram þó að menn taki upp annan hátt á innheimtu afnotagjalda og setji í skatta, sem ég tel að komi mjög vel til greina.
Aðalatriðið í fyrirspurninni var að spurt var hvort hæstv. ráðherra ætlaði að leggja í þessa göngu. Ég kem upp til að taka undir þá kröfu að hæstv. ráðherra svari því skýrt hvað hann ætlar sér í þessu efni.