Jón Kr. Óskarsson:
Hæstv. forseti. Hv. 1. flm. till. til þál. Ég tek persónulega heils hugar undir þessa tillögu. Ég er kominn af sjómönnum langt fram í ættir og mér er málið talsvert skylt. Ég veit að stór hluti af því að Eimskipafélag Íslands var stofnað á sínum tíma var til að styrkja stofnun íslenska lýðveldisins. Þá voru menn bjartsýnir og höfðu margt í huga með farskipin.
Hvar eru íslensk farskip í dag? Hvar eru íslenskir sjómenn á farskipum í dag? Þeir eru mjög fáir ef þeir eru nokkrir til, örfáir.
Ég kenndi við Sjómannaskólann í Vestmannaeyjum í nokkur ár. Þá var Guðjón Ármann Eyjólfsson þar skólastjóri sem varð síðar skólastjóri Stýrimannaskóla Íslands. Ég veit að hann hafði miklar áhyggjur af því hvað fækkaði í sjómannastétt á þeim tíma sem hann var skólastjóri. Hvers vegna er svona komið fyrir íslenskri farskipastétt? Er það ekki andvaraleysi íslenska ríkisvaldsins, íslenskrar ríkisstjórnar?
Ég tek heils hugar undir það að skipuð verði nefnd til að kanna hvað hægt er að gera. Mig hryllir við þeirri hugsun að íslensk farskip séu mönnuð erlendum sjómönnum við Íslandsstrendur. Ég held að við ættum að skoða vel þær hugmyndir sem Norðurlandaþjóðirnar nota í þessum efnum og skoða þessi mál á farsælan hátt á næstu vikum og mánuðum. Ég held að íslensk farskip verði að vera mönnuð íslenskum sjómönnum, landi og lýð til heilla.