Anna Kristín Gunnarsdóttir:
Herra forseti. Það kann að vera að sú umræða sem hér fer fram byggist á misskilningi en sá misskilningur er byggður á bréfi sem kom frá menntmrn. til skólameistara sem víða um Ísland eru nú í öngum sínum vegna sameiginlegs skilnings á þessu bréfi þannig að ég ætla þá að ráðleggja hæstv. menntmrh. að fela embættismönnum sínum að skrifa nýtt bréf þar sem fyrirætlan ráðuneytisins kemur skýrar fram.
Ég ætla einnig að taka fram að það er ekki það sama að hleypa öllum nemendum sem á því hafa áhuga í framhaldsnám og að hleypa þeim í framhaldsnám þar sem þeim hentar best, þ.e. á heimaslóð. Það leysir engan vanda fyrir nemanda á Ísafirði, Akranesi, Suðurnesjum eða Suðurlandi að vera vísað í skóla í Reykjavík sem hugsanlega ættu laus pláss né heldur annars staðar á landinu. Fólk þarf að hafa leyfi til þess að sækja skóla í sinni heimabyggð og það er það eina sem er þjóðhagslega hagkvæmt.