Fyrirspyrjandi (Margrét Frímannsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svör Fangelsismálastofnunar ríkisins. Það kemur mér satt að segja ekki á óvart að sú stofnun sem fer með fangelsismál á landinu og kemur væntanlega næst ráðuneytinu skuli ekki hafa ígrundað það við endurskoðun á greiðslu á dagpeningum 2002 fyrir hvað þeir stæðu og til hvers þeir væru ætlaðir. Í reglugerðinni stendur mjög skýrum stöfum að þeir séu ætlaðir til að mæta brýnustu nauðsynjum.
Ef skoðað er verð á vöruflokkum sem afgreiddir eru í búð fangelsanna og sem ekki má koma með inn í fangelsin segir það sig sjálft að 580 kr. á dag duga hvergi nærri fyrir brýnustu nauðsynjum. Þar með er ekki bara verið að refsa brotamanninum fyrir þann verknað sem hann hefur framið og dómstólar kveðið upp dóm, heldur fjölskyldu hans líka. Það er ætlast til þess að hún sé með hann meira og minna á framfæri á meðan á afplánun stendur. Ég vil beina því til hæstv. ráðherra að hann láti endurskoða þær forsendur sem liggja að baki þessum greiðslum og launagreiðslunum því að eins og hv. þm. Atli Gíslason sagði frá áðan eru afar mismunandi greiðslur til fanga fyrir vinnu.
Þar er ríkið líka að mínu mati að brjóta lög. Það er svört atvinnustarfsemi stunduð á Litla-Hrauni. Það eru ekki borguð nein gjöld af vinnunni, engin tryggingagjöld og ekki neitt. Athugasemdir hafa borist frá ríkisskattstjóra þess efnis að þessu eigi að breyta en það hefur ekki verið gert.
Ég skora á hæstv. ráðherra að láta fara fram ítarlega endurskoðun á öllum þessum greiðslum um leið og hæstv. ráðherra beitir sér fyrir því að það frv. sem var lagt fram um fangelsismálin verði endurbætt.