Ábyrgðarmenn námslána

Miðvikudaginn 10. mars 2004, kl. 18:53:06 (5174)

2004-03-10 18:53:06# 130. lþ. 81.12 fundur 680. mál: #A ábyrgðarmenn námslána# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., JKÓ
[prenta uppsett í dálka] 81. fundur, 130. lþ.

[18:53]

Jón Kr. Óskarsson:

Herra forseti. Hæstv. menntmrh. Mig langar að koma með eina litla spurningu. Mér heyrðist að þú teldir að um 50--60 milljarðar væru útistandandi í ...

(Forseti (BÁ): Hv. þm. er áminntur um að ávarpa ekki ráðherra eða einstaka þingmenn beint, heldur beina máli sínu annaðhvort til forseta eða þingheims alls.)

Herra forseti. Mig langar að koma með eina stutta fyrirspurn. Það er talað um að 50--60 milljarðar séu útistandandi hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Er mögulegt, herra forseti, að fá upplýsingar um hvað er í vanskilum hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna?