Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Þeim áformum hefur ekki verið breytt, segir hæstv. forsrh. En ég spyr: Er ekki kominn tími til að reyna að draga lærdóma af sögunni? Þegar ákvörðun var tekin um það í þessum sal að gera Landssímann, Póst og síma, að hlutafélagi fyrir fáeinum árum sagði hæstv. þáv. samgrh., núv. hæstv. forseti Alþingis, að að hans mati kæmi ekki til greina að selja Landssímann, hann ætti að vera í eign Íslendinga um ókomin ár. Ég held að hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin jafnvel hafi trúað þessu þá.
Núna segir núverandi forstjóri Símans: Æskilegt er að Síminn verði áfram að einhverju leyti í eigu Íslendinga. Er þetta virkilega framtíðarsýnin? Á að halda með allar okkar eignir út úr landinu, hvort sem það er til Búlgaríu eða til annarra staða? Er ekki kominn tími til að draga lærdóm af sögunni?