Breyting á XII. viðauka við EES-samninginn

Mánudaginn 15. mars 2004, kl. 15:41:46 (5308)

2004-03-15 15:41:46# 130. lþ. 83.13 fundur 611. mál: #A breyting á XII. viðauka við EES-samninginn# (greiðslur yfir landamæri í evrum) þál., Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 130. lþ.

[15:41]

Frsm. utanrmn. (Sólveig Pétursdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. utanrmn. á þskj. 1093. Þetta er 611. mál þingsins. Um er að ræða till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 154/2003, um breytingu á XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 154/2003 frá 7. nóvember 2003, um breytingu á XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2560/2001 frá 19. desember 2001 um greiðslur yfir landamæri í evrum.

Nefndin fékk til fundar við sig þau Bergdísi Ellertsdóttur og Ernu S. Hallgrímsdóttur frá utanrrn., Þóru Hjaltested frá iðn.- og viðskrn., Hallgrím Ásgeirsson frá Seðlabanka Íslands og Guðjón Rúnarsson frá Samtökum banka og verðbréfafyrirtækja.

Í reglugerðinni er kveðið á um að kostnaður við greiðslur milli landa í evrum skuli vera hinn sami og kostnaður við greiðslur í evrum innan lands en verðlagning á þjónustunni eigi að öðru leyti að vera frjáls. Ákvæði þessi gilda um greiðslur allt að 12.500 evrum fram til ársins 2006 en þá hækkar fjárhæðin í allt að 50 þús. evrur. Jafnframt er gert skylt að hafa upplýsingar um kostnað við greiðslur milli landa aðgengilegar.

Meginþýðing þessara reglna er að ekki verði lengur leyfilegt að taka hærra gjald fyrir greiðslur í evrum yfir landamæri en tekið er fyrir sams konar færslur innan aðildarríkis.

Innleiðing reglugerðarinnar krefst lagabreytinga hér á landi og samkvæmt upplýsingum frá iðn.- og viðskrn. verður lagafrumvarp væntanlega lagt fyrir Alþingi á yfirstandandi þingi. Þá verður farið ítarlega yfir einstök efnisákvæði reglugerðarinnar.

Hv. þm. Magnús Stefánsson og Steingrímur J. Sigfússon voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Utanrmn. leggur til að tillagan verði samþykkt og undir nál. þetta skrifa hv. þm. Sólveig Pétursdóttir, Guðmundur Árni Stefánsson, Jónína Bjartmarz, Bryndís Hlöðversdóttir, Drífa Hjartardóttir, Einar K. Guðfinnsson og Össur Skarphéðinsson.