Sigurjón Þórðarson (andsvar):
Frú forseti. Það er greinilegt að hæstv. ráðherra hefur velt fyrir sér málefnum hafsins og fiskveiðistofna og hefur kynnt sér það gaumgæfilega. Því langar mig að spyrja hæstv. umhvrh. sem er náttúrlega orðin sérfræðingur í umhverfismálum út frá starfi sínu og hefur lifað og hrærst í þeim heimi um nokkra hríð: Er ekki áhugavert að skoða það hvort við getum lært af öðrum þjóðum hvað varðar fiskveiðistjórn, t.d. Færeyingum, þar sem fiskstofnar eru í mjög góðu ástandi en hér hefur verið sýnt fram á að stofnar eru lakari en fyrir daga kvótakerfisins? Og vegna þess að hæstv. umhvrh. er sérfræðingur á þessu sviði, telur hún þá ekki áhugavert að skoða það stjórnkerfi sem Færeyingar hafa reynslu af og hefur skilað þeim mun meiri afla en Íslendingum en hér er afli helmingi minni að meðaltali en fyrir daga kvótakerfisins? Gætum við ekki lært eitthvað af Færeyingum og jafnvel haldið ráðstefnu eins og hv. þm. Magnús Þór Hafsteinsson minntist á, væri ekki áhugavert að skoða þau mál? Í Færeyjum hefur náðst árangur en við höfum ekki af miklum árangri að státa, því miður.