Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Ég skal vera stuttorður. Ég vek athygli á því að stjórnarþingmönnum finnst skondið þegar stjórnarandstaðan gerir athugasemdir við framferði framkvæmdarvaldsins og ráðherra. Þær athugasemdir sem hér hafa verið settar fram eru ekki settar fram í neinum hugaræsingi og fullkomlega reiðilaust. Ég vek athygli á því að hér er einvörðungu verið að ítreka þá stefnu sem stjórn Alþingis hefur þegar mótað. Stjórn þingsins hefur áður beint þeim tilmælum til ráðherra að þeir leitist við að skipuleggja ráðstefnur á sínum vegum sem þingmönnum er ætlað að sækja og eru auk þess áhugaverðar og þingmenn gjarnan vilja sækja --- og það á við í þessu tilviki --- að slíkar ráðstefnur séu skipulagðar þar sem þingmenn eiga heimangengt vegna þingstarfa. Ég mælist til þess að hæstv. forseti þingsins taki þetta mál til umræðu við ráðherra og þá sérstaklega viðkomandi ráðherra að þessu sinni, hæstv. forsrh. Davíð Oddsson.