Útgáfa bókarinnar Forsætisráðherrar Íslands

Miðvikudaginn 17. mars 2004, kl. 13:55:07 (5403)

2004-03-17 13:55:07# 130. lþ. 85.1 fundur 583. mál: #A útgáfa bókarinnar Forsætisráðherrar Íslands# fsp. (til munnl.) frá forsrh., JÁ
[prenta uppsett í dálka] 85. fundur, 130. lþ.

[13:55]

Jóhann Ársælsson:

Hæstv. forseti. Það var ekki upplýst í umræðunni hverjir verða höfundar þessarar bókar. En í einhverjum fjölmiðli kom fram að hæstv. forsrh. ætlaði að skrifa um einn af fyrirrennurum sínum. Ástæða væri til að fá á hreint hvort það er rétt. Ef svo er væri vert að spyrja hvort hæstv. ráðherra ætlar að taka sér til þess einhvers konar orlof, já fæðingarorlof, fram að þeim tíma sem bókin á að koma út. Stutt er þangað til. Mér fyndist ástæða til að fá þetta upplýst vegna þess að í einhverjum fjölmiðli kom þetta fram.