Jón Bjarnason:
Herra forseti. Ég tel að það eigi að fara afar varlega í að efna til samræmdra prófa í framhaldsskólum og reyndar einnig í grunnskólum. Samræmd próf leiða til falskrar samkeppni og hættan er sú að önnur verkefni hjá viðkomandi skólum njóti sín ekki sem skyldi vegna þeirrar áherslu sem lögð er á hin samræmdu próf.
Ég vil líka benda á að gerðar eru miklar kröfur til kennaramenntunarinnar og þeirra starfsmanna sem vinna að kennslu, meira en til nokkurs annars starfs í landinu nánast, nema þá ef við tölum um heilsugæslustörf eða eitthvað slíkt. Þar er valinn maður í hverju rúmi og ætti að geta sinnt þessu starfi án þess að þurfa að leggja einhvern landsmælikvarða á það. Ég hvet hæstv. menntmrh. til að endurskoða ákvörðunina um samræmd próf og væri gott ef ráðherrann beitti sér fyrir því að lögum um þetta yrði breytt.