Veiðikort

Miðvikudaginn 17. mars 2004, kl. 18:49:12 (5480)

2004-03-17 18:49:12# 130. lþ. 85.9 fundur 705. mál: #A veiðikort# fsp. (til munnl.) frá umhvrh., SigurjÞ
[prenta uppsett í dálka] 85. fundur, 130. lþ.

[18:49]

Sigurjón Þórðarson:

Frú forseti. Ef ég man rétt lagði Náttúrufræðistofnun til fimm ára veiðibann vegna þess að ekki fékkst í gegn sölubann. En síðan var ákveðið af hæstv. umhvrh. að bannið yrði til þriggja ára. Því væri fróðlegt að fá upplýsingar um þetta hjá hæstv. ráðherra: Ef rannsóknir sýna fram á að það verði mikið um rjúpu núna mun hún þá endurskoða umrætt veiðibann? Það væri fróðlegt að fá að heyra það áður en hún lætur af embætti.