Starfsskilyrði héraðsdómstólanna

Fimmtudaginn 18. mars 2004, kl. 10:38:01 (5496)

2004-03-18 10:38:01# 130. lþ. 86.95 fundur 420#B starfsskilyrði héraðsdómstólanna# (umræður utan dagskrár), dómsmrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 130. lþ.

[10:38]

Dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. málshefjanda fyrir að hefja máls á þessu máli í þinginu. Hann veltir fyrir sér hvernig fjárveitingar til dómstólanna hafi fylgt fjölgun mála hjá dómstólunum á sl. árum. Í fjárlögum ársins 1999 var rekstur allra héraðsdómstóla sameinaður undir einn fjárlagalið. Frá og með þeim fjárlögum hafa fjárveitingar í fjárlögum hækkað um rúmlega 300 millj. kr. varanlega til dómstólanna. Þar af eru um 235 millj. kr. vegna launa- og verðlagsbreytinga og er því hækkun að raungildi tæplega 65 millj. kr. á þessu tímabili. Heildarframlag á fjáraukalögum til héraðsdómstóla á þessum árum hefur verið um 100 millj. kr. Þar af voru tæpar 50 millj. kr. árið 2002. Umtalsverð raunhækkun hefur því orðið á fjárframlögum til héraðsdómstóla undanfarin ár og allt tal um að þrengt hafi verið að fjárhag þeirra er úr lausu lofti gripið.

Þá er rætt um fjölgun þingfestra mála. Þeim hefur fjölgað mjög eins og fram hefur komið en þar munar mest um þau mál þar sem ekki er haldið uppi vörnum og enginn munnlegur málflutningur fer fram. Slík mál eru að jafnaði afgreidd með einfaldri áritun dómara.

Fjöldi munnlega fluttra mála hefur ekki breyst nærri því svo mikið sem ætla mætti af skyndiskoðun á fjölda þingfestinga en þessar tölur sveiflast milli ára. Þannig má nefna að árið 1993 voru munnlega flutt mál 1.250 en voru 1.260 árið 2001. Fjöldinn varð síðan 1.385 mál árið 2002 en önnur ár má svo taka til að fá aðrar tölur. Þessar tölur segja aðeins hluta sögunnar því að hins er að geta að árið 1993 voru starfandi svokallaðir dómarafulltrúar en með dómstólalögunum árið 1998 voru þau störf aflögð. Mér finnst ástæða til að spyrja hvort þar hafi Alþingi stigið heilladrjúgt skref. Dómarafulltrúakerfið hafði vissulega sína kosti enda hafa nágrannaþjóðir okkar ekki farið þá leið að leggja það af.

Í dómsmrn. er unnið að tillögum að lagabreytingum til að efla skilvirkni dómskerfisins og þá m.a. hugað að því að veita aðstoðarmönnum dómara vissar heimildir til afgreiðslu mála.

Þá var eitt af því sem hv. málshefjandi velti fyrir sér hvort ég mundi beita mér fyrir lagabreytingum til að styrkja dómstólaráð. Það stendur ekki til en ég tel ekki að dómstólaráð, með fullri virðingu fyrir því, sé endilega forsenda þess að sjálfstæði dómara sé tryggt. Ég tel ekki að íslenskir dómstólar hafi ekki hlotið sjálfstæði fyrr en dómstólaráð var stofnað hinn 1. júlí 1998. Íslenskir dómstólar voru sjálfstæðir fyrir þann tíma og þeir eru það enn.

Árið 1998 hafði hver og einn héraðsdómstóll svipaða stöðu gagnvart framkvæmdarvaldinu hvað varðar fjármál og aðstöðu alla og Hæstiréttur Íslands hefur um þessar mundir. Enginn efast um sjálfstæði Hæstaréttar. Úr því að rætt er um sjálfstæði dómara er rétt að hafa í huga að sjálfstæði dómarans beinist ekki að dómsmrn. eða framkvæmdarvaldinu einu heldur einnig öðrum aðilum. Dómari á vitaskuld að vera óháður öðrum mönnum og þjóðfélagsöflum og einnig óháður öðrum dómurum og félögum þeirra eða ráðum.

Þá hefur hv. málshefjandi lesið hér upp ályktun Dómarafélags Íslands sem hefur verið til umræðu en eins og ég hef áður nefnt og sagt, bæði vegna þeirrar ályktunar sérstaklega og einnig í þessum orðum mínum, tel ég það mjög orðum aukið að dómstólar landsins búi við fjárhagslegt harðræði. Raunaukning hefur orðið í fjárveitingum til þeirra undanfarin ár og Alþingi hefur auk þess samþykkt aukafjárveitingar. Dómsmrn. fylgist grannt með framvindu mála hjá dómstólunum og bregst við auknum verkefnum og auknu álagi þeirra í tillögum sínum við gerð fjárlaga.

Um þessar mundir er jafnframt hugað að breytingum á lögum til að auka hagræðingu við dómstörf. Rétt er að hafa í huga að samkvæmt núgildandi lögum geta einungis héraðsdómarar, en tala þeirra er fastbundin í lög, afgreitt þau mál sem til dómstólanna berast. Auknar fjárveitingar einar og sér breyta engu um fjölda dómara eða hve mörgum málum hver dómari þarf að sinna.

Virðulegi forseti. Þó að ég hafi bent á að fjárveitingar til dómstólanna hafi aukist en ekki minnkað á undanförnum árum vil ég að lokum taka skýrt fram að ég tel afar mikilvægt að dómstólar landsins hafi þau skilyrði sem þeir þurfa til að geta sinnt verkefnum sínum á eðlilegan hátt og ég er þess fullviss að í framtíðinni takist okkur að gæta þess að svo verði eins og hingað til.