Dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég tel að það sé svolítið einkennilegt að koma hér upp og þurfa að standa í rökræðum út af þessu máli úr því að við erum sammála um markmið frv. Við erum sammála um að við viljum ekki að fólk misnoti land okkar til þess að afla sér dvalarleyfis því það er ekki bara að fá dvalarleyfi hér, það er líka að fara inn á Schengen-svæðið. Það er líka að standa að því að reyna að komast ekki endilega hingað, heldur að reyna að svindla sér inn á Schengen-svæðið og notar sér kannski glufur í íslenskum lögum þegar litið er til þeirra aðgerða sem gripið er til alls staðar annars staðar á Schengen-svæðinu þar sem Norðurlöndin hafa m.a. gengið fremst í flokki, og okkur er nauðsynlegt að hafa þessi tæki.
Eins og ég sagði í ræðu minni áðan ætla ég ekki að fara að tíunda einstök dæmi sem ég hef af því ég vil ekki fjalla um málefni einstaklinga. Ég tala um þetta almennum orðum. Ég bendi hv. þingmönnum á að alls staðar í nágrannalöndunum er verið að vinna með sambærilegum hætti að þessum málum, alls staðar standa menn frammi fyrir þeim vanda að verið er að reyna að svindla sér inn í löndin og inn á Schengen-svæðið með því m.a. að nota hjúskapinn sem skálkaskjól. Við erum sammála um að þetta eigi ekki að líða og við erum að leggja til skýr ákvæði um hvernig vinna eigi að þessum málum.
Síðan er í athugasemdum við frv. bent á vísbendingar sem gætu verið því til stuðnings að komast að því hvort um málamyndahjónaband sé að ræða. Það eru vangaveltur í greinargerð, ekkert ákvæði í lögum. Það er hægt að tíunda margt fleira og greinargerðin gæti verið lengri og hægt er að benda á ýmis önnur atriði því það er mjög einstaklingsbundið hvaða aðferðum menn beita í þessu. Við erum að skapa þessi tæki og við erum að skapa forsendurnar til þess að ná markmiði sem við erum öll sammála um að skynsamlegt sé að ná, til þess m.a. að tryggja réttarstöðu þeirra sem eru á lögmætum forsendum í landinu. Ég á eftir að sjá menn andmæla því að sú réttarstaða sé tryggð.