Verslun með áfengi og tóbak

Þriðjudaginn 23. mars 2004, kl. 14:41:44 (5611)

2004-03-23 14:41:44# 130. lþ. 88.7 fundur 342. mál: #A verslun með áfengi og tóbak# (einkaréttur til innflutnings á tóbaki, EES-reglur) frv. 24/2004, Frsm. meiri hluta PHB
[prenta uppsett í dálka] 88. fundur, 130. lþ.

[14:41]

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá meiri hluta efh.- og viðskn. um 343. mál á þskj. 1181, um breyting á lögum um verslun með áfengi og tóbak.

Meiri hlutinn hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Elmar H. Hallgrímsson og Ingva Má Pálsson frá fjármálaráðuneyti.

Í frumvarpinu er lagt til að einkaréttur ríkisins til innflutnings og framleiðslu tóbaks verði afnuminn. Þrátt fyrir þessar breytingar mun einkaréttur ríkisins til heildsölu tóbaks haldast óbreyttur og ÁTVR tryggja áfram merkingar á tóbaki og álagningu áfengisgjalds.

Eftirlitsstofnun EFTA hefur dregið í efa að einkaleyfi ríkisins á innflutningi og framleiðslu tóbaks samrýmist ákvæðum EES-samningsins þar sem tóbak hefur verið fellt undir reglur samningsins um frjálst flæði vöru.

Vegna óvissu um réttmæti einkaleyfis ríkisins á innflutningi og framleiðslu tóbaks og þar sem meiri hlutinn telur sýnt að breytingin sem lögð er til í frumvarpinu muni ekki hafa áhrif á tóbaksvarnir leggur hann til að frumvarpið verði samþykkt.

Gunnar Örlygsson sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hann samþykkur áliti þessu.

Undir nál. rita hv. þm. Pétur H. Blöndal, Kristinn H. Gunnarsson, Birgir Ármannsson, Dagný Jónsdóttir, Gunnar Birgisson, Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Lúðvík Bergvinsson.