2004-03-23 17:44:47# 130. lþ. 88.11 fundur 612. mál: #A staðfesting samninga um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen# þál., Frsm. SP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 88. fundur, 130. lþ.

[17:44]

Frsm. utanrmn. (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Eins og ég gat um í framsögu minni hélt nefndin fund með sjútvn. Alþingis þar sem farið var ítarlega yfir alla efnisþætti málsins. Þar voru viðstaddir fulltrúar frá utanrrn., sjútvrn. og Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Reynt var að fara yfir sem flesta þætti málsins og stuttlega minnst á þetta atriði. Ef ég man rétt var farið yfir þetta mál allnákvæmlega í fyrri umræðu um málið á hinu háa Alþingi og hæstv. utanrrh. tók þátt í þeirri umræðu.