Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég verð að segja að ef þetta er rétt mat hjá hv. þm. á athöfnum og vilja utanrrh. veldur það mér miklum vonbrigðum að hæstv. utanrrh. skuli í raun og veru vera búinn að lýsa því formlega yfir að hann sé tilbúinn að gefa eftir svo og svo mikið af síldinni til að ná samningum þar, og vegna þess að hann sé fyrir fram ákveðinn í því að slaka öllu út ætli hann ekki einu sinni að nota sér það vopn sem snýr að loðnusamningunum að segja þeim upp með nægum fyrirvara þannig að uppsögnin öðlist gildi og það skapist einhver samningsstaða vegna þess að fyrir liggi ákvörðun um að segja loðnusamningnum upp. Ég átta mig bara ekkert á þeirri samningatækni sem hæstv. utanrrh. er að beita í málinu ef þetta er rétt lýsing hjá hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni. Ég verð að segja að mér finnst hún alveg furðuleg og hægt að orða það svo að menn séu ekki að gæta ýtrustu hagsmuna Íslendinga með því að fara í málið með þeim hætti sem hv. þm. Össur Skarphéðinsson lýsir. Ef mat hans á athöfnum utanrrh. er rétt er þetta alveg makalaust mál.