Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Frú forseti. Ég met það svo að ummæli hæstv. ráðherra um síldina hafi veikt samningsstöðu Íslendinga. Það er alveg ljóst. Það flýgur hver sem hann er fiðraður og þetta er mat mitt á þeim orðum. Mat mitt á öðru sem fram kom af hálfu hæstv. ráðherra er að hann hafi ekki verið giska áfjáður í að leggja í erfiða samninga. Ég vil þó að það komi alveg skýrt fram af minni hálfu að ég tel að það sé ekki einboðið að segja upp loðnusamningnum þó að tök væru á til að setja þrýsting á Norðmenn varðandi síldina. Ég tel að það séu aðrar leiðir til að láta þá fá meiri hita í haldið. Hv. þm. hefur sjálfur fyrr í dag bent á leiðir til þess sem hljóta að sjálfsögðu að koma til greina í stöðunni sem við erum að sigla inn í.