Skerðing kolmunnakvóta

Mánudaginn 29. mars 2004, kl. 15:17:35 (5668)

2004-03-29 15:17:35# 130. lþ. 89.1 fundur 438#B skerðing kolmunnakvóta# (óundirbúin fsp.), sjútvrh.
[prenta uppsett í dálka] 89. fundur, 130. lþ.

[15:17]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):

Herra forseti. Við höfum einmitt á undanförnum árum verið að auka rannsóknir okkar á kolmunna. Við höfum lagt áherslu á rannsóknir á kolmunna innan íslensku lögsögunnar og þau gögn sem þar hafa komið fram eru lögð til grundvallar í kröfum okkar, í samningum okkar um skiptingu á veiðiheimildum úr kolmunnastofninum.