Sigurjón Þórðarson (andsvar):
Herra forseti. Við í þingflokki Frjálsl. teljum þessar breytingar á löggjöfinni um húsnæðismál almennt mjög jákvæðar. Þó þarf að koma vissum hlutum á hreint áður en hægt verður að leggja endanlegan dóm á hvernig til tekst, sérstaklega fyrir efnahagslíf þjóðarinnar. Meginspurningin er nú: Hvert verður þakið á hámarkslánum? Talað hefur verið um að verði þakið hækkað mjög mikið muni það valda þensluáhrifum. Ríkisstjórnin hefur boðað 90% lán af verðgildi eigna og þá er nauðsynlegt að fá upp --- lögin taka gildi 1. júlí þannig að menn hafa örugglega gert sér í hugarlund hversu há lánin eiga að vera --- hver upphæðin verður þegar verið er að meta áhrif þessarar löggjafar. Hæstv. félmrh. hlýtur að hafa einhverjar hugmyndir um hvert þakið verður á hámarkslánunum.