Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Þriðjudaginn 30. mars 2004, kl. 17:52:56 (5814)

2004-03-30 17:52:56# 130. lþ. 90.5 fundur 786. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (afnám gjalda) frv., sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur, 130. lþ.

[17:52]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Ég held ekki að það sé rétt ályktun hjá hv. þingmanni af því hve mikið hafi verið veitt að mönnum hafi gjörsamlega mistekist.

Þar sem hann kannast ekki við þær tölur sem ég var að vitna í bendi ég honum á fréttir af fyrirlestri sem Einar Hjörleifsson fiskifræðingur hélt á málþingi sem Hafrannsóknastofnunin stóð fyrir fyrir nokkrum vikum. Þar er einmitt fjallað um þetta á nákvæmlega þeim nótum sem ég var að fara með. (Gripið fram í.)