Samningur ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Chiles

Þriðjudaginn 30. mars 2004, kl. 19:14:50 (5848)

2004-03-30 19:14:50# 130. lþ. 90.12 fundur 735. mál: #A samningur ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Chiles# þál. 16/130, Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur, 130. lþ.

[19:14]

Frsm. utanrmn. (Sólveig Pétursdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. utanrmn. á þskj. 1233. Þetta er mál nr. 735, till. til þál. um fullgildingu samnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Chiles.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að fullgilda samning milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA, og lýðveldisins Chiles sem undirritaður var í Kristiansand í Noregi 26. júní 2003.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Grétar Má Sigurðsson og Önnu Jóhannsdóttur frá utanríkisráðuneyti.

Fríverslunarsamningurinn við Chile kveður á um fríverslun með allar sjávarafurðir og langflestar iðnaðarvörur. Þá tekur hann til þjónustuviðskipta, verndunar hugverkaréttar, opinberra innkaupa og samkeppni auk þess að geyma ákvæði um stofnsetningarrétt. Sérstakir tvíhliða samningar hafa hins vegar verið gerðir um viðskipti með landbúnaðarafurðir og vernd fjárfestinga.

Drífa Hjartardóttir, Magnús Stefánsson og Ágúst Ólafur Ágústsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir nál. skrifa hv. þingmenn Sólveig Pétursdóttir, Guðmundur Árni Stefánsson, Jónína Bjartmarz, Rannveig Guðmundsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Einar K. Guðfinnsson.