Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Ég kvarta ekki yfir því að eiga orðastað við hv. þm. Steingrím J. Sigfússon. En þar sem hann hefur setið á hv. Alþingi í 21 ár, ef ég kann það rétt, þá veit hann eins vel og ég að þessi umræða var um sjávarútvegsmál.
Þegar hann talar um að það megi ekki vísa hinum ýmsu málum til viðkomandi fagráðherra, hvað er þá maðurinn að tala um, hv. þm.? Auðvitað fara fagráðherrar með málaflokka sína. Það vill svo til að ég fer ekki með sjávarútvegsmál í þessari ríkisstjórn. Eins og hann talar þá mætti skilja það þannig að ég fari með öll mál sem varða landsbyggðina. Þá hlýt ég að svara hér fyrir landbúnaðarmál líka, er það ekki? Öll mál, jafnvel samgöngumál á landsbyggðinni.
Þetta gengur ekki. Það er kominn tími til að hv. þm. og fleiri hv. þingmenn sem hafa þennan skilning á hlutverki mínu geri sér grein fyrir því að þau mál sem ég fer með eru þau mál sem hæstv. forsrh. fór með fyrir 1. janúar árið 2000 (Gripið fram í.) og varða fyrst og fremst Byggðastofnun og framkvæmd byggðaáætlunar.
Ég fer ekki með sjávarútvegsmál. Ég hef mikinn áhuga á þeim en af tillitssemi við hæstv. sjútvrh. ætla ég ekki að svara fyrir þau hér á Alþingi.