Björgvin G. Sigurðsson:
Virðulegi forseti. Það eru vissulega blikur á lofti í atvinnumálum á Suðurnesjunum eins og fram hefur komið í þjóðfélagsumræðunni á síðustu mánuðum og missirum. Fyrirsjáanlegur samdráttur í rekstri varnarliðsins hefur í för með sér að fjöldi manna gæti misst vinnuna, fleiri bæst á atvinnuleysisskrá á Suðurnesjunum og er atvinnuleysi þar nú hvað hæst á landinu öllu. Það er þörf sértækra aðgerða á Suðurnesjunum til að stemma stigu við þessari þróun og mæta þeim samdrætti í rekstri varnarliðsins sem blasir við öllum. Því höfum við samfylkingarþingmenn undir forustu fyrirspyrjanda, hv. þm. Jóns Gunnarssonar, lagt til að sala á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesjanna verði skoðuð, enda gefur hún einstakt tækifæri til aðgerða ef andvirðinu verður varið til atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjunum, enda gæti verið um að ræða á þriðja milljarð króna. Eru áhrif slíkra fjármuna á framtíð svæðisins augljós og skora ég á hæstv. utanrrh. og ríkisstjórnina að skoða þessar hugmyndir gaumgæfilega og af athygli.