Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon):
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda, Ögmundi Jónassyni, fyrir fyrirspurnina og fyrir það fyrirheit að halda þeim sem hér stendur við efnið þegar kemur að málefnum fatlaðra.
Það er vissulega rétt að það er eitt af áhersluatriðum mínum að styðja vel við fatlaða í samfélagi okkar.
Hv. þm. spyr hvernig háttað sé eftirlitsskyldu félmrn. með fjölfötluðum börnum til sex ára aldurs með sérstakri skírskotun til almennrar þjálfunar, talkennslu, iðju- og sjúkraþjálfunar?
Fjölfötluð börn undir sex ára aldri njóta sérhæfðrar þjálfunar hjá sjálfstætt starfandi þjálfurum, þ.e. sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum og talmeinaþjálfum. Þær starfsstéttir vinna samkvæmt samningi við Tryggingastofnun ríkisins. Auk þess vinna sérfræðilæknar við þjálfun þessara barna, einnig eftir samningi við Tryggingastofnun. Þjálfunin fer mest fram á sérstökum stofum, en er þó í undantekningartilvikum veitt á leikskólum. Utan höfuðborgarsvæðisins getur starfsþjálfun verið veitt hjá heilsugæslunni, eins og gerist t.d. á Austurlandi.
Þroskaþjálfar starfa hjá ýmsum þeim stofnunum sem veita fjölfötluðum börnum þjónustu og þar fer þjálfunin fram. Þetta á við um svæðisskrifstofur málefna fatlaðra og leikskóla. Á Vesturlandi og Austurlandi hefur þjónusta svæðisskrifstofu verið veitt heima hjá barni. Skólaskrifstofur hafa ráðgjafarskyldur við leikskólabörn og þaðan er hægt að fá sérfræðiþjónustu, iðjuþjálfa og talmeinafræðing, sem felst í ráðgjöf til þeirra sem ber að veita þjálfunina. Fjölfötluð börn sem dvelja á heimili fyrir fötluð börn í Reykjavík fá þjálfun í Lyngási.
Hæstv. forseti. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins fer með eftirfylgd og ráðgjöf skv. 8. gr. laga um Greiningarstöðina, nr. 83/2003. Almennt eftirlit með fjölfötluðum börnum er síðan á vegum svæðisráða málefna fatlaða, sbr. 36. gr. laga um málefni fatlaðra, þar sem segir að svæðisráð skuli standa vörð um rétt fatlaðra til þjónustu samkvæmt lögum um málefni fatlaðra og öðrum lögum. Að öðru leyti er eftirlit með þjálfun fatlaðra barna ekki á vegum félmrn. Sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttir, þ.e. sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, talmeinafræðingar og sérfræðilæknar svo og þroskaþjálfar, vinna samkvæmt lögum sem um þær stéttir gilda, jafnframt sem læknalög gilda um sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og þroskaþjálfa eftir því sem við getur átt. Jafnframt er bent á siðareglur viðkomandi fagstétta.
Í öðru lagi spyr hv. fyrirspyrjandi hvort aðhald og eftirlit sé samræmt þegar um marga þjónustuaðila er að ræða.
Eins og fram kemur, hæstv. forseti, í svari mínu að framan er eftirlit með þjónustu þeirra sem veita börnum þjálfun ekki samræmd á landsvísu. Á svæðum málefna fatlaðra hefur á hinn bóginn verið leitast við að samræma þá þjónustu sem hvert barn fær. Hv. fyrirspyrjandi gat þess í máli sínu að þokast hefði heldur í rétta átt á því rétt tæpa ári sem liðið er frá því að málinu var síðast hreyft af hv. fyrirspyrjanda á Alþingi og það er rétt. Betur má ef duga skal. Ég vil af því tilefni, hæstv. forseti, upplýsa það að á vegum félmrn. fer á næstu vikum og mánuðum fram viðamikið starf þar sem meiningin er að leggja grunninn að framtíðarstefnumótun í málefnum fatlaðra. Að því verki er áætlað að komi fulltrúar fatlaðra, aðstandenda þeirra, starfsfólks sem vinnur með fötluðum, þeirra sem greiða fyrir þjónustuna og fleiri. Það mál sem hv. þm. Ögmundur Jónasson hreyfir hér er vitanlega þess eðlis að það má telja næsta öruggt að það komi til umræðu við þá stefnumótun.