Fyrirspyrjandi (Gunnar Birgisson):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin sem mér þóttu heldur þunn í roðinu. Þó er gleðilegt að á þessu ári er verið að taka 50 rými á Vífilsstöðum í notkun sem er ekkert smávegis. Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra: Eru þau eingöngu hugsuð fyrir Garðbæinga eða nágrannasvæði eins og Hafnarfjörð og Kópavog eða Suðvest. eða Reykjavík líka, eða hvað? Það væri kannski rétt að fá svör við því.
Það eru 8 rými í Roðasölum fyrir heilabilaða og MS-sjúklinga sem áætlað er að taka í notkun í haust. Við fögnum því auðvitað og einnig 60 rýmum í Reykjavík. Síðan sagði hæstv. ráðherra að ekki væri planað að taka nein rými í notkun í Suðvest. árið 2005. Það þykir mér miður því tíminn stoppar ekki. Við höldum áfram að eldast og þörfin vex og þrátt fyrir þann fjölda rýma sem er kominn dugar það hvergi til. Hæstv. ráðherra sagði að 2006 væri ekki klárt. Það er alveg ljóst að berast mun þrýstingur frá sveitarfélögunum um málið. Þessi mál brenna á skinni þeirra sem standa í sveitarstjórnarmálunum og þess vegna er fyrirspurnin til komin.
Hæstv. ráðherra nefndi frv. til laga um málefni aldraðra og í því frv. er möguleiki að menn geti farið í einkaframkvæmdir með hjúkrunarheimili og annað slíkt, líkt og Sóltún, og rétt að fá nánari skilgreiningu og hugsun hæstv. ráðherra í því máli.