Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Í vikunni sem alþingiskosningar voru háðar flutti bandaríski sendiherrann skilaboð til íslensku ríkisstjórnarinnar sem voru þess eðlis að það var ljóst að fram undan væri stórfelld fækkun í varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Síðan hefur hvorki gengið né rekið í samningaviðræðum, ef samningaviðræður skyldi kalla, milli Íslendinga og Bandaríkjamanna um þetta mál. Það er alveg ljóst að þar er veruleg vík á milli vina og Bandaríkjamenn sem til máls taka um þetta fara ekki dult með það að í raun séu engar samningaviðræður í gangi, það sé frekar hægt að kalla það samráð.
Við í Samfylkingunni höfum verið þeirrar skoðunar að eins og málum er háttað verði þetta mál ekki leyst nema með beinum viðræðum milli æðstu stjórnenda ríkjanna tveggja.
Það kom fram í máli hæstv. forsrh. í síðasta mánuði að í aprílmánuði væru fyrirhugaðar mikilvægar viðræður. Nú er hæstv. forsrh. fjarverandi. Hann er í Bandaríkjunum í mikilvægum erindagerðum að því er ég las í Morgunblaðinu. Ég vil því spyrja hæstv. utanrrh. og starfandi forsrh. hvort Davíð Oddsson forsrh. muni ekki í þessari heimsókn eiga viðræður við yfirmenn Bandaríkjastjórnar um þessi mál og hvort hann muni ekki freista þess að ná fundi Bush Bandaríkjaforseta til þess að reyna að fá botn í þetta erfiða vandamál sem hefur komið upp milli þessara tveggja vinaþjóða.