Helgi Hjörvar (andsvar):
Virðulegur forseti. Hæstv. félmrh. fagnaði ekkert sérstaklega umræðunni þegar álit kærunefndar jafnréttismála lá fyrir í málefnum Leikfélags Akureyrar, heldur taldi hann að sú niðurstaða kallaði á ákveðnar aðgerðir. Það er greinilegt að í huga hæstv. félmrh. á hið sama ekki við um hæstv. dómsmrh. Björn Bjarnason og átti við um framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu og er greinilega gerður nokkur mannamunur á þeim bæ.
Maður hlýtur að spyrja hæstv. félmrh. hvort þessi áætlun hafi verið kynnt í ríkisstjórn og hvort þær eindregnu yfirlýsingar sem hann hefur haft hér uppi um nauðsyn þess að jafna kjör kvenna og karla á hinum opinbera vinnumarkaði hafi verið kynntar í ríkisstjórn og hvort það sé fullkomin samstaða í ríkisstjórninni um þær áherslur sem hér eru uppi fyrst svona mikil óeining er um jafnréttislögin sjálf og grundvallarákvæði þeirra. Eftir því hljótum við að kalla við þessa umræðu, virðulegur forseti.