Áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára

Fimmtudaginn 15. apríl 2004, kl. 19:29:52 (6473)

2004-04-15 19:29:52# 130. lþ. 97.11 fundur 873. mál: #A áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára# þál. 29/130, JóhS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 97. fundur, 130. lþ.

[19:29]

Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir þau sjónarmið sem hæstv. ráðherra setur hér fram. Ég lít einnig svo á að okkur gangi það sama til, höfum það sama markmið að setja fram raunhæfar tillögur til að ná því markmiði að vinna hér gegn launamisrétti kynjanna og uppræta það á sem skemmstum tíma. Síðan munum við auðvitað skoða það á þeim dögum sem eftir eru af þinginu hvort við náum þá ekki saman um leiðir, við erum sammála um markmiðið, og það mun koma í ljós þegar við afgreiðum tillöguna frá þinginu.