Verndun Þingvallavatns og vatnasviðs þess

Föstudaginn 23. apríl 2004, kl. 12:41:30 (6618)

2004-04-23 12:41:30# 130. lþ. 101.1 fundur 934. mál: #A verndun Þingvallavatns og vatnasviðs þess# frv., RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 101. fundur, 130. lþ.

[12:41]

Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fróðleg svör og fylgi þeim ekki frekar eftir, en er honum afskaplega ósammála. Ég hef sjálf verið sveitarstjórnarmaður og treysti sveitarstjórnum almennt til verka, en einhvers staðar verður að vera varúðarventill. Það er jafnöruggt og ég stend í ræðustól á Alþingi.