Loftferðir

Föstudaginn 23. apríl 2004, kl. 15:59:08 (6665)

2004-04-23 15:59:08# 130. lþ. 101.2 fundur 945. mál: #A loftferðir# (Montreal-samningurinn, EES-reglur o.fl.) frv. 88/2004, 946. mál: #A alþjóðasamningur um loftflutninga milli landa# frv. 52/2004, samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 101. fundur, 130. lþ.

[15:59]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég kann ekki svör við öllum spurningum sem hv. þm. Össur Skarphéðinsson leggur fyrir mig og það gildir um þá sem hér er lögð fram. Hlutafélagið sem stendur fyrir þessari ráðstefnu, Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf., hefur ekki leitað til samgönguráðuneytisins um samstarf vegna þeirra málefna sem verður fjallað um á þessari tilteknu ráðstefnu. Ég get staðfest það.