Málefni aldraðra

Föstudaginn 23. apríl 2004, kl. 17:22:27 (6685)

2004-04-23 17:22:27# 130. lþ. 101.10 fundur 570. mál: #A málefni aldraðra# (hlutverk Framkvæmdasjóðs, samstarfsnefnd o.fl.) frv. 38/2004, GHall (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 101. fundur, 130. lþ.

[17:22]

Guðmundur Hallvarðsson (andsvar):

Herra forseti. Bara til glöggvunar og upprifjunar, að þegar Sóltúnsheimilið var boðið út var sjálfseignarstofnunum ekki heimilt að bjóða í Sóltúnsheimilið á grundvelli útboðslaga. Sjálfseignarstofnunum er því óheimilt að bjóða í. Það verður að gerast með þeim hætti að ráðuneytið ákveði að öðruvísi skuli fara með. Svo einfalt er þetta.