Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Það er líka rétt að hafa í huga að veiðiheimildir Norðmanna eru bundnar við það að þeim er óheimilt að veiða sunnan við tiltekna línu úti fyrir Austfjörðum. Sú lína er miðuð við það að þegar loðnan kemur suður fyrir hana er hún orðin hæf til þess að frysta hana með hrognum. Það liggur alveg ljóst fyrir að vegna þess ástands sem hefur ríkt á Japansmarkaði höfum við viljað takmarka þær veiðar við okkar eigin skip. Þannig hefur það verið í gegnum tíðina og Norðmönnum og Færeyingum er það alveg ljóst.
Það er ekkert óeðlilegt við það að binda þessar heimildir tilteknum skilyrðum. Ég bendi á að þessar heimildir Færeyinga eru án þess að við fáum heimildir í þeirra lögsögu í staðinn og það finnst mér sjálfsagt og eðlilegt miðað við samskipti þjóðanna, en ekki óeðlilegt að þetta sé bundið ákveðnum skilyrðum sem taka tillit til markaðsaðstæðna sem við þekkjum mjög vel.