Samstarf Vestur-Norðurlanda um sjálfbæra nýtingu fiskstofna

Mánudaginn 26. apríl 2004, kl. 18:20:37 (6791)

2004-04-26 18:20:37# 130. lþ. 102.31 fundur 572. mál: #A samstarf Vestur-Norðurlanda um sjálfbæra nýtingu fiskstofna# þál. 18/130, Frsm. JBjart
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 130. lþ.

[18:20]

Frsm. utanrmn. (Jónína Bjartmarz):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. hv. utanrmn. um till. til þál. um aukið samstarf Vestur-Norðurlanda um sjálfbæra nýtingu sameiginlegra fiskstofna á þskj. 1450.

Vegna málsins fékk nefndin á sinn fund hv. þm. Birgi Ármannsson, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins.

Með tillögunni er lagt til að ríkisstjórninni, í samvinnu við landsstjórnir Færeyja og Grænlands, verði falið að efla enn frekar samstarf landanna um veiðar úr sameiginlegum fiskstofnum og stuðla að samningum sem tryggi áfram sjálfbæra nýtingu þeirra. Tillagan byggist á ályktun Vestnorræna ráðsins nr. 2/2003 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins sem haldinn var 14.--16. ágúst 2003.

Hv. utanrmn. leggur til að tillagan verði samþykkt. Við afgreiðslu málsins var hv. þm. Guðmundur Árni Stefánsson fjarverandi en hv. þingmenn í utanrmn. auk frsm. skrifa undir álit þetta. Það eru Sólveig Pétursdóttir, formaður, Drífa Hjartardóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Guðlaugur Þór Þórðarson, Magnús Stefánsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir.