Kennaraháskóli Íslands

Mánudaginn 26. apríl 2004, kl. 18:39:51 (6795)

2004-04-26 18:39:51# 130. lþ. 102.34 fundur 817. mál: #A Kennaraháskóli Íslands# (dómnefndir, auglýsingar um störf o.fl.) frv. 42/2004, Frsm. DJ
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 130. lþ.

[18:39]

Frsm. menntmn. (Dagný Jónsdóttir):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nál. frá menntmn. við frv. til laga um breytingu á lögum nr. 137/1997, um Kennaraháskóla Íslands. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín gesti sem og umsagnir.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum varðandi ráðningar kennara, sérfræðinga og fræðimanna við Kennaraháskóla Íslands. Lagt er til að háskólanum verði heimilað að ráða fólk til tiltekinna starfa án auglýsingar og að heimilt verði að ráða kennara til háskólans tímabundinni ráðningu til allt að fimm ára. Nefndin leggur áherslu á að þessari heimild verði beitt þröngt en undir hana geta m.a. fallið störf háskólakennara eða sérfræðinga sem byggjast á rannsóknastyrkjum, störf nemenda sem eru í rannsóknatengdu framhaldsnámi, starf vísindamanns sem byggist á sérstökum tímabundnum styrk til rannsókna hans sjálfs sem styrkþega, samvinnuverkefni háskólamanns og annars aðila um sérstakar tímabundnar rannsóknir og sérstök tímabundin kennarastörf sem eru kostuð af utanaðkomandi aðilum.

Þá er gert ráð fyrir því í frumvarpinu að ráða megi kennara við háskólann í hlutastarf og tengja starf kennara tilteknu starfi utan háskólans, en slíkar heimildir er nú að finna í lögum um Háskóla Íslands og eðlilegt þykir að ríkisháskólarnir hafi allir sömu stöðu hvað þetta varðar. Einnig er í frumvarpinu gert ráð fyrir heimild háskólaráði til handa til að setja nánari reglur um nýráðningar og framgang í starfi þar sem einnig er kveðið á um störf dómnefnda og meðferð umsókna. Slíkt ákvæði er nú að finna í sérlögum um aðra ríkisháskóla.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Ísólfur Gylfi Pálmason, Mörður Árnason og Sigurður Kári Kristjánsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nefndarálitið rita Gunnar Birgisson, formaður, Kjartan Ólafsson, Björgvin G. Sigurðsson, Dagný Jónsdóttir, Valdimar L. Friðriksson og Kolbrún Halldórsdóttir.