Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Það er rétt sem kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda að dregist hefur að svara þessari fyrirspurn og ég ber nokkra ábyrgð á því. Ég er samt þeirrar skoðunar að það að ekki skyldi hægt að hefja starfið eða ná samkomulagi um þessa áætlun og aðgerð fyrir áramót ætti ekki að skaða. Aðalatriðið er að þann 11. mars 2003 samþykkti Alþingi þingsályktun um rannsóknir á samfélagslegum áhrifum álvers og virkjanaframkvæmda á Austurlandi og í kjölfarið óskaði iðn.- og viðskrn. eftir því við Byggðarannsóknastofnun að hafinn yrði undirbúningur slíkrar rannsóknar.
Stofnunin skilaði fyrstu tillögum að verkáætlun fyrir slíka rannsókn í júní 2003 að höfðu samráði við Þróunarstofu Austurlands. Í greinargerð Byggðarannsóknastofnunar með tillögu sinni var mælt með nokkuð umfangsmiklum rannsóknum. Iðnrn. óskaði eftir því að tillögum stofnunarinnar yrði forgangsraðað með hliðsjón af því fé sem þannig var raunhæft að afla til verksins og skilaði Byggðarannsóknastofnun tillögum þar að lútandi í janúar sl.
Þar sem verkefnið er nokkuð margbreytilegt og umfangsmikið og nær yfir sex ára tímabil, frá 2004--2009, hefur tekið lengri tíma að útfæra verkefnið en ráð var fyrir gert. Engu að síður hefur ráðuneytið lagt áherslu á að hraða málinu. Því var þann 7. apríl sl. undirritaður samningur milli ráðuneytisins, Byggðarannsóknastofnunar og Þróunarstofu Austurlands um rannsókn á samfélagslegum virkjana- og álversframkvæmdum á Austurlandi.
Markmið rannsóknarinnar er að fylgjast með samfélagsbreytingum og þróun byggðar og atvinnulífs á því landsvæði þar sem áhrifa álvers og virkjanaframkvæmda sem nú eru hafnar gætir mest. Verkefnið er mjög víðfeðmt og nær til umfangsmikillar söfnunar og gagnavinnslu opinberra gagna og gagna frá framkvæmdaraðilum, úrtakskönnunum, viðtalskönnunum og könnunum meðal fyrirtækja.
Rannsóknin hefst þegar á þessu ári og eins og kom fram áður mun hún standa í sex ár eða til loka ársins 2009. Verkið verður unnið undir stjórn Byggðarannsóknastofnunar af hópi vísindamanna við Háskólann á Akureyri í samvinnu við Þróunarstofu Austurlands. Frá 2004--2009 mun árlegt framlag iðn.- og viðskrn. til verksins nema 5 millj. kr., Byggðastofnunar 4 millj. kr., Byggðarannsóknastofnunar 1 millj. kr. og Þróunarstofu Austurlands 500 þús. kr.