Mörður Árnason:
Forseti. Við upphaf þings í haust var haldin ráðstefna á vegum ASÍ um velferðarmál. Þar talaði m.a. Ásgeir Jónsson hagfræðingur sem ætti að vera að góðu kunnur hér í þingsal af ákveðnum ástæðum. Ásgeir sagði um Kárahnjúkavirkjun og framkvæmdirnar fyrir austan að ef þeim fylgdi ekki markviss uppbygging á Austurlandi, byggðaáætlanir, glögg framtíðarsýn, að menn vissu klárlega hvað þeir ætluðu sér með stóra staði þar og uppbyggingu í atvinnulífi, væri hættan sú að Kárahnjúkavirkjun og álversframkvæmdirnar, eins misvinsælar og þær eru, yrðu að lokum til einskis. Þegar mestur móðurinn væri af framkvæmdamönnum þá væri allt eins og það hefði verið á Austurlandi. Þess vegna er þessi rannsókn mjög mikilvæg. Og enn þá mikilvægara er að hæstv. iðnrh. geri okkur grein fyrir því hvernig þær hanga saman við þær áætlanir sem í gangi hljóta að vera og við þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar (Forseti hringir.) eru á öllum sviðum í atvinnulífi og menntamálum víðar á Austurlandi.