Eignarhald á fjölmiðlum á Íslandi, munnleg skýrsla menntamálaráðherra

Miðvikudaginn 28. apríl 2004, kl. 18:16:41 (7005)

2004-04-28 18:16:41# 130. lþ. 105.1 fundur 509#B eignarhald á fjölmiðlum á Íslandi, munnleg skýrsla menntamálaráðherra# (munnl. skýrsla), JBjart (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 105. fundur, 130. lþ.

[18:16]

Jónína Bjartmarz (andsvar):

Enn og aftur, hv. þingmaður, við erum að ræða hér þessa skýrslu sem hæstv. menntmrh. mælti fyrir í byrjun dags. Við erum ekki að ræða efni frv. Það er búið að dreifa því og umræðan um það verður tekin í annan tíma þannig að ég haldi því til haga.

Að öðru leyti skil ég ekki spurningu hv. þm. og mér finnst verst að hann á ekki kost á öðru andsvari til að árétta hana. Það er samt sjálfsagt síðar í umræðunni í dag að skýra eitthvað sem hv. þingmanni fannst ekki skýrt í ræðu minni.