Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Frú forseti. Það hefur komið skýrt fram í umræðunni að hv. þm. hafa miklar áhyggjur af atvinnumálum á Suðurnesjum. Ég deili þeim áhyggjum. En það er mikil mótsögn í því að sumir hv. þm. sem hafa þessar miklu áhyggjur eru andvígir því að bandaríski herinn sé á Keflavíkurflugvelli almennt. (SJS: Að liggja á hnjánum hjá honum.) Það liggur enginn á hnjánum, hv. þingmaður, og þessi mál verða ekki leyst með friðarháskóla eins og annar hv. þingmaður sagði áðan. (Gripið fram í: Jú.) Það er mjög algengt hjá hv. þingmanni og ýmsum fleirum hér inni að segja: Það verður að gera eitthvað annað. Við könnumst við það úr stóriðjumálunum. (Gripið fram í: Bara gera eitthvað.) Ja, eitthvað annað. (Gripið fram í.) Það er ekki nóg, hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir, að gera eitthvað annað. (KolH: Aðlögun er áætlun.) Aðlögun eða áætlun um hvað? Menn verða að vita hvað menn vilja í þessu sambandi. Það er ekki nóg, hv. þingmaður, að segja alltaf: Eitthvað annað. Ég deili hins vegar þessum áhyggjum. (SJS: Hvað með að nýta aðstöðuna sem þarna er?) (Gripið fram í: Ég skil ekki.) (Gripið fram í: Er það bara að gera eitthvað?)
Það er alveg ljóst að við getum ekki byrjað að skipuleggja starfsemi í eignum sem við höfum ekki til umráða, það er ekki hægt, og ég held að hv. þingmenn geti verið sammála því. Það er hins vegar stefna íslenskra stjórnvalda að hér sé nauðsynlegur varnarviðbúnaður og þá eru þessi mannvirki nauðsynleg. Það er hins vegar margt jákvætt að gerast á Suðurnesjum. Verið er að byggja upp orkumannvirki þar vegna stóriðju. Ég vona að hv. þingmenn styðji það. (Gripið fram í.) (KolH: Hvað með kvennastörfin?) Það er verið að byggja upp Flugstöð Leifs Eiríkssonar og ferðamál á Suðurnesjum. Ég vona að hv. þingmenn styðji það. Það er verið að tvöfalda Reykjanesbraut þannig að það er margt jákvætt að gerast. En það má ýmislegt fleira gera og við skulum taka höndum saman um það.